mánudagur, 29. september 2014

Neww


Keypti mér fyrr í sumar einn hlut af óskalistanum. Nike New Balance svarta og hvíta, og keypti þá í Geysi Skólavörðustíg. Kostuðu 19.800kr-. minnir mig
Keypti mér í leiðinni brúngráa Fjallraven tösku en mig er búið að langa í svoleiðis tösku mjög lengi.

 


TAKK!.

Ítalía í sumar

Hæ í byrjun sumars, eða 7. júní fór ég til Ítalíu með mömmu og pabba. Við ferðuðumst þar í rúmlega tvær vikur (16 daga) og bjuggum þar á fjórum stöðum. Fyrstu nóttina gistum við í Milanó. Svo gistum við í 5 daga í Levanto sem er lítill sjávarbær við Cinque Terre þjóðgarðinn. Það er ótrúlega fallegur staður og þar löbbuðum við gönguleiðir sem eru þekktar á milli litlu bæjanna í Cinque Terre og nutum útsýnisins, borðuðum á góðum veitingastöðum og lágum á ströndinni við blá-tæran sjó .. Svo gistum við tvær nætur í gömlu Lucca. Í Lucca tjilluðum við bara og skoðuðum litlu krúttlegu búðirnar sem þar eru. Loks gistum við í 8 daga í villu í miðri Toscana. Þar tjilluðum við líka bara á sundlaugarbakkanum, keyrðum um, hittum vinafólk og höfðum það gott. Enduðum svo á að gista aðra nótt í Milanó og og áttum svo góðan heilan dag þar til að skoða áður en við tókum næturflugið heim.
Þetta var geggjuð ferð í alla staði
Hér eru nokkrar myndir frá ferðinni

Fyrir utan húsið í Levanto


Ströndin við Monterosso
Manarola


Fallega Cinque Terre 

Vernazza

 Manarola


Bonassola

Lucca

Herbergið mitt í Toscana villunni


Útsýnið úr glugganum






Toscana útsýnið 

Borðað morgunamatinn úti

Pizzað sig útí garði


Pizzugerð í garðinum

Heimsótt vinafólk



Appelsínusafi á hverjum morgni



Kósí






Milanó-tjill


TAKK!.